Friday, January 22, 2010

Myndasögubók kemur út á mánudag

Á mánudaginn munu 7 myndlistarnemendur úr listaháskólanum, þ.m.t. ég, gefa út myndasögubók. Útgáfupartý verður haldið um daginn í Útúrdúr(bókverkabúð staðsett í Havarí) í Austurstræti, við hliðina á Thorvaldssen.
Endilega sem flestir að mæta og fjárfesta í eintaki, en bókin verður í mjög takmörkuðu upplagi, einungis 50 eintök verða gefin út. Þannig að það er best að næla sér í eintak á meðan það er til...

Monday, January 11, 2010

Svefnspjall

Allar færslur á þessari síðu eru eitthvað sem maður þessarar konu segir í svefni... Lesið, þetta er flokk fyndið:D