Sunday, October 15, 2006

Dauðasynd-Reiði? Mér er alveg nákvæmlega sama!

Nú er ég víst orðin reið aftur!!! Ástandið er svo...

Allavega, reiðivaki minn er í formi tveggja heimskra prakkara-krakka-fífla!!!
Ég og hún móðir mín vorum að sjoppa kjól fyrir árshátíðina og komum við í Kaffitári að sníkja kaffi. Við spjölluðum smá við hann Þórhall sem þá var að vinna. Hann sagði okkur að það hefðu tvö strákafífl, ca 9 ára, verið að pirra hann við afgreiðslu og þegar Þórhallur fór inn í kompu til þess að láta reiðina renna af sér, ákváðu strákafíflin að beina stríðni sinni á viðskiptavini. Þeir ákváðu að það væri alveg ógeðslega sniðugt að hrækja ofan í kaffibollann hjá konu einni, og gerðu slíkt hið sama! Svo fannst þeim greinilega ekki nóg komið og gengu upp að aumingja konunni og HRÆKTU framan í hana!!!!! Djöfulsins ógeð eru þetta!!! Ég er svo reið sérstaklega fyrir hönd konunnar, nýsest niður á kaffihús með góðan kaffibolla í hönd, og fær svo viðbjóðslegt krakkaslef, útatað í ís og ógeði, framan í sig!!! Vá ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvað ég myndi vilja gera til þess að refsa þessum fíflum!!! Og ef ég myndi skrifa eitthvað að því niður núna þá væri það miður smekklegt þannig að ég sleppi því bara, ef mér skyldi detta eitthvað í hug!!!

Hvernig fer maður að því að gera svona, hvernig er hægt að láta sér detta slíkt í hug? Það væri heldur gróft að kenna foreldrum um, eða því að annar strákurinn hefur espað hinn upp og gagnkvæmt... Ég bara skil þetta ekki! Hvað er hægt að gera svo þessir krakkar verði að siðmenntuðu og heiðvirðu fólki?

3 Comments:

Anonymous Anonymous segir:

vá, ég verð pirruð bara við að lesa þetta!!! Það er engin virðing í samfélaginu í dag!!!

10:29 PM  
Blogger Lati Strumpur segir:

oj, krakkafífl

er dyraat ekki lengur í tísku? hoho..

10:41 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Ég gerði oft dyraat... hjehje... já ég veit að það er pirrandi en ekki eins viðbjóðslegt og þetta!!!

5:34 PM  

Post a Comment

<< Home