Monday, April 24, 2006

Paradísar-borgin

Þegar maður vinnur á opinberum stöðum eða er í skóla, þá segir fólk, sem maður kannski þekkir ekkert svakalega vel, eitthvað við okkur! Í mörgum, ef ekki flestum af þessum tilvikum, dettur manni nákvæmlega ekkert sniðugt í hug að segja á móti. Ég er ein af þeim sem velta sér endalaust yfir hvað ég hefði átt að segja... Eins og um daginn í vinnunni. Þá kom maður á kassann til mín með litla handkörfu fulla af mat. Þegar hann var að sturta úr henni á færibandið sagði hann:"Noh, ég er bara með hollan mat í körfunni, ég er virkilega bara að kaupa hollan mat. Það er bara ekkert óhollt í körfunni!!". Mér fannst þessi maður ekkert sérstaklega fyndinn eða sniðugur svo ég ákvað að hunsa hann bara. Eftirá, þá hugsaði ég með mér hvað það hefði verið í stíl við húmor þessa kalls að segja:" Jáh, þú verður örugglega alveg svakalega mjór á morgun eftir að hafa borðað allan þennan holla mat!".
Var á röltinu heim í snjókomunni. Loftið var rafmagnað og snjókornin féllu á andlitið, hárið og nefið. Ég greip nokkur snjókorn með tungunni á meðan ég hlustaði á "Paradise City" með Guns'n'Roses.

8 Comments:

Anonymous Anonymous segir:

hehe, best að segja eitthvað sem viðskiptavinunum líkar!

Það var svona jólasnjór áðan ;)

11:29 PM  
Blogger Lati Strumpur segir:

hehehe
en viðskiptavinurinn hefur ávallt rétt fyrir sér? er þaggi?
samt hefði þetta verið gott feis á hann!

11:54 PM  
Anonymous Anonymous segir:

jább flott feis... Samt svona djókfeis, held hann hefði fattað það...

3:22 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Hæhæ, ég er búin að hlaða inn myndum á myndaalbúm, bara fyrir ykkur að skoða...

7:05 PM  
Blogger Lati Strumpur segir:

Flottar myndir! ;)

(fyrir utan fyrstu myndina...haha :Þ)

9:45 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Ég er örugglega búin að setja inn fleiri myndir frá því þú sást síðast, svo er ég líka búin að skrifa smá um hverja mynd...

9:58 PM  
Anonymous Anonymous segir:

nennirðu að henda Monte Carlo myndinni af mér! Takk! Annars fínar myndir ;)

6:26 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Nei ég setti þessa mynd af þér þarna vegna þess að myndin af mér var ljótari og þetta var betri mynd af borginni en mannalausa myndin, svo sættu þig við það hahahahaha...

10:07 PM  

Post a Comment

<< Home