Friday, March 31, 2006

Ýmislegt brugg...

Var í vinnunni í dag. Það kom e-r karl á kassann hjá mér og svona skvetti handkörfunni á færibandið hjá mér. Sagði svo :"hérna..", ætlaðist greinilega til þess að ég tæki úr körfunni, fjandans asninn.... Fannst mér þetta frekar mikil óvirðing gagnvart mér, en ég náttla gat ekkert gert án þess að vera rekin.... Svo ég ákvað að taka bara ofurhægt úr körfunni, bara til að athuga hvort það pirraði hann!!! Það gerði það ekki, hann var ekkert að flýta sér... Mér finnst ég vera áhrifslaus og skítug....
Búin að endurnýja Dúdann, þ.e. búin að setja fullt af nýjum lögum í staðinn fyrir lög sem ég var vön að spóla yfir.... Komið smá með Kaiser Chiefs, Guns´n´roses, Ampop, The Coral, o.fl....
Fékk í gær einkunnir í Lífrænni efnafræði og Islensku-ritgerðinni.... Í hinu fyrrnefnda hlaut ég einkunnina 8,7 og í hinu síðarnefnda 8,0. Nokkuð sátt. Langaði samt geðveikt í 9 í ritgerðinni en bjóst samt við 6-7...Svona er það að fá ekki að eiga kökuna og éta hana líka....
Á morgun fer ég í bústað í afmælispartýið hjá henni Gauju.... Ætla að vera rosalega frumlega og gefa henni þúsundkall.... Kannski handgert afmæliskort, eða er það kannski stílbrot? Jæja.. Þetta fer að verða búið þetta tiltekna blogg... Skrifumst seinna og ekki gleyma að skrifa ykkur í gestabókina og kommenta, til þess er þetta....

10 Comments:

Anonymous Anonymous segir:

sumir kúnnar geta verið svo dónalegir!!!

1:18 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Jámm...Af hverju getur fólk aldrei tekið tillit til annars fólks... Sumir þurfa alltaf að láta sjálfan sig vera á hærri stalli... Oft er þetta ekki einu sinni merkilegt fólk. Stundum langar mig til þess að segja e-ð :"Heyrðu mig, Kannt þú að diffra?"... Haha, en ég hef ekki hjarta í að rakka fólk niður, hversu ömurlegt sem það er...

5:31 PM  
Blogger Lati Strumpur segir:

ojj, pirrandi svona fólk!

1:59 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Jám... Úff hvað ég er þreytt... Við vorum í heita pottinum í einhverja 2-3 tíma.... hehehehe. Ég Inga og una erum sem sagt Pottadýr kvöldsins, þær voru reyndar soldið lengur en ég svo ég er bara semi-pottadýr...

4:50 PM  
Anonymous Anonymous segir:

úff...ég gafst upp á pottinum. Of troðið og og mikið að táslum. Ég fíla ekki táslur :/

7:51 PM  
Anonymous Anonymous segir:

hahahahahaha.... það var svo gaman að sjá alla detta á svellinu fyrir framan, ég eiginlega tímdi ekki að fara úr pottinum.. hehe

8:24 PM  
Blogger svooona segir:

dugleg ertu....

8:40 PM  
Anonymous Anonymous segir:

uuuuu ,,halló?"
segir hver bara....
farð ÞÚ að koma með nýtt blog!! heheheh
ég vil nýtt blog, ég vil nýtt blog, ég vil nýtt blog, ég vil nýtt blog...

6:20 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Netið er bilað heima, en þar sem ég er í vinnunni þá get ég svarað þér...

6:52 PM  
Blogger Lati Strumpur segir:

ókei

10:55 PM  

Post a Comment

<< Home