Thursday, January 15, 2009

Litla monsterið okkar mömmu

Sú kunna iðja að stanga snaga með auganu er velliðin iðja innan Einarsson fjölskyldunnar. Þegar hafa tveir fjölskyldumeðlimir framkvæmt þennan verknað og hlotið góðan árangur, þó síðari aðilinn, faðirinn, sýndi í vikunni, í þeirri íþrótt mikla yfirburði í tækni og stíl, með eftirfarandi árangri.
Myndin fyrir ofan er tekinað kveldi hins umrædda dag sem stangið átti sér stað.
Myndin að neðan er er tekin í kvöld, u.þ.b. þrem dögum eftir afrekið.

Það verður að segjast að faðir vor er sérstaklega hæfileikaríkur í íþrótt þessari og er þess líklegast stutt að bíða eftir að afrek þessi komist á spjöld sögunnar, þar sem fáir teldust fimari en hann:D
Posted by Picasa

5 Comments:

Blogger Þorsteinn segir:

...áááááái!

Bíður hann þessa bætur, blessaður?

9:16 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Jah, svo segir augnlæknirinn. Svo virðist sem hornhimnan hafi ekki skaddast þar sem sjónin er enn til staðar. :D

9:55 PM  
Anonymous Anonymous segir:

æji viltu blogga eitthvað nýtt, fæ alltaf sting í augun þegar ég sé þessa myndir blasa við mér í hvert skipti sem ég heimsæki massarinu
:D

11:29 PM  
Anonymous Anonymous segir:

Æji greyið.....það er hræðilegt að sjá hann :O( Knústann frá mér
Kveðja Svansa

7:04 PM  
Anonymous Anonymous segir:

OJ! Var ekki búin að sjá þessar myndir! Ekki datt mér í hug að þetta hefði verið svona slæmt- þetta er eins og hann sé að leika í zombie mynd ;( Er hann ekki búinn að ná sér?

Kv Helga

5:33 PM  

Post a Comment

<< Home