Wednesday, April 30, 2008

Barablogg

Júhúúúú ég á seðla á rafrænu formi:D
Vill einhver koma með mér að eyða?
Pabbi vinnur hörðum höndum að því að setja nýjar hurðir og dyrakarma á efri hæðinni, ásamt því að vera á fullu inni í þvottahúsi að setja upp nýja innréttingu og að flísaleggja gólf og veggi þar. Þannig að nú er engin hurð á herberginu mínu... Ekkert einkalíf:(
Þetta er búinn að vera yndislegur dagur. Ég var að vinna í Þjóðminjasafninu í dag með skemmtilegum stelpum, Helga kom í heimsókn í vinnuna, og líka Elísabet. Ég borðaði góða skyrtertu í vinnunni:D Ég fór í ræktina með Helgu, Daða og Pétri, vini Daða og svo í heita ljópottinn í Laugardalslauginni eftirá. Eftir það fórum við út að borða á Banthai, sem er thalienskur staður fyrir ofan Hlemm, þar sem Devitos Pizza er. Ég fékk æðislegt Masaman Karrí:D Svo ákvað Daði að splæsa:D Ah, ég er þreytt og ég gæti sofnað á stundinni.
Allt eru þetta frekar hversdagslegir hlutir en saman gera þeir skemmtilegan dag og frekar óáhugavert blogg...

2 Comments:

Anonymous Anonymous segir:

ég sat inni allan dag í gær og las!!

Kringlan eftir próf = eyða hehe ;)

12:01 PM  
Anonymous Anonymous segir:

ég var að leika mér í sveitinni
að elta hunangsflugur og synda með öndunum í vatninu og borða flugur

8:34 PM  

Post a Comment

<< Home