Friday, August 31, 2007

Jóhanna Rebel

Var í tölvuvinnslu um daginn í skólanum og tók með mér HP kjöltutólið mitt(PC laptop). Einnig vorum við eitthvað að nota veraldarvefinn og notaði ég til þess Internet Explorer. Kennarinn okkar, Brooks (borið fram Brúx:D), er Macintosh og Firefox aðdáandi og fyrirlítur Internet Explorer og PC tölvur... Hann hélt langar ræður um hvernig PC fyrirtæki væru að reyn aða ná heimsyfirráðum og vildu hafa algera stjórn á öllum stafrænum ljósmyndum í alheiminum og blablabla... Mér leið svona eins og uppreisnarseggi, að ég skuli þora að bjóða kennaranum svona í byrginn!!!
Ég sá Astrópíu um daginn með Mömmu, Mæju systur hennar og Emmu konu tvíbura mömmu. Myndin er alveg fantagóð og gömlu kellurnar skelltu oft upp úr. Söguþráður myndarinnar er kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir, en þrátt fyrir vondan söguþráð þá gerir hópurinn þetta bara svo vel og brandararnir eru snilld... Ég meina, söguþráðurinn í Ice Age var aldrei neinar heilaskurðlækningar, en myndin var meira um persónurnar sjálfar frekar en einhvern söguþráð... Stundum er söguþráðurinn bara örþunnur silkiþráður og ómerkilegur(líkt og í Ice Age, Astrópíu,...) og stundum er hann þykkt garnaprjón(eins og í The Others, Sixth Sense,...). Hvort heldur er, þá finnst mér gott að geta horft á báða enda kvikmyndagerðarinnar. Hvað finnst ykkur?

1 Comments:

Anonymous Anonymous segir:

jú einmitt en þá er líka eftir þráðurinn með öllum myndunum sem maður pælir virkilega í og sem skilja eitthvað eftir sig ;) langar til að sjá Astrópíu fljótlega.... (verður örugglega komin á vídjó þegar ég dríf í því hehe)

8:13 PM  

Post a Comment

<< Home